|
Gistiheimilið Pálshús
Gistiheimilið Pálshús er staðsett í fjölskylduhúsi. Við búum á efri hæðum hússins og gistingin er í kjallara hússins. Það gefur okkur möguleika á að veita sem besta þjónustu. Í gistiaðstöðunni er góð lofthæð og bjart í herbergjum sem bæði snúa út í garð. Herbergin eru vel búin með sjónvarpi og geislaspilara. Þau deila með sér eldhúsi sem er fullbúið öllum helstu tækjum og borðbúnaði. Baðherbergið er einnig sameiginlegt og þar er bæði baðkar og sturtuaðstaða. Hægt er að vera með aukarúm inná herbergjum hvort sem um er að ræða barnarúm eða auka rúm fyrir fullorðinn. Svefnpokagisting er möguleg yfir sumartímann.
Staðsetning
Gistiheimilið Pálshús er við Einarsnes, sem er í Skerjafirðinum. Þetta er fallegt, friðsælt og gamalgróið íbúðahverfi í Reykjavík, rétt hjá Reykjavíkurflugvelli og í göngufæri frá miðbænum. Það er um 15-20 mínútna gangur niður að tjörn. Það er lítið mál að vera bíllaus því strætisvagn stoppar fyrir framan gistiheimilið.
- Rómantískt gamalt hverfi
- Fjölskylduvænt
- Þjóðminjasafnið,
- Perlan,
- Ylströndin í Nauthólsvík,
- Öskjuhlíðin,
- Háskóli Íslands,
- Miðbær Reykjavíkur og umhverfi
- Í göngufæri í næsta nágrenni er:
- Sundlaug Vesturbæjar,margar aðrar skemmtilegar gönguleiðir
- Strætó stoppar fyrir framan húsið
- Við erum nálægt Reykjavíkurflugvelli
|
|
|